Orkubókhald. Maja Toudal er einhverfur sálfræðingur og hún hannaði þetta úrræði/tæki til að ná utan um það hvernig við varðveitum og notum orkuna okkar í daglegu lífi. Síða Maju sjálfrar: http://www.majatoudal.com/
Í stuttu máli sagt þá er “verðmiði” settur á athafnir, getur verið í plus eða mínus. Svo er vikan/dagurinn/tímabilið skoðað m.t.t. þess hvort við erum að koma út í plús eða mínus gegnum lífið. Það að “eyða” sífellt meiri orku en við “öflum” er ávísun á vandræði og þessi myndræna framsetning getur hjálpað manni að fá yfirsýn og sjá hvar eru tækifæri til aðlögunar.